Tek að mér gerð eignaskiptayfirlýsinga fyrir húsfélög, einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.
Ég hef góða þekkingu og reynslu af vinnu við eignaskiptayfirlýsinga og hef tekið slíkt að mér frá árinu 2019.
Verkefnin hafa verið fjölbreytt, víðsvegar um landið og fyrir fjölbreytta aðila, svo sem Sveitarfélögin Skagafjörð og Skagaströnd, leigufélögin Bríet og Brák, Landsbankann og marga byggingarverktaka.
Ég hef starfsleyfi til þess að gera eignaskiptayfirlýsingar frá Iðnviðaráðuneyti og er á lista yfir þá sem hafa slíkt leyfi. HMS – leyfishafar
Þegar um er að ræða eldri hús þarf oftar en ekki að reikna upp húsin þar sem skráning stærða er ekki samkvæmt núgildandi reglum og skráningartafla á rafrænu formi ekki til. Stundum reynast þá líka aðaluppdrættir vera ónothæfir til að reikna upp af eða þeir jafnvel ekki til. Við slíkar aðstæður hef ég í mörgum verkum gert raunuppdrætti og skráningartöflur byggðar á þeim.
Stundum kemur fyrir að eldri húsum hefur verið breytt í gegnum tíðina án þess að þær breytingar hafi ratað á teikningar eða inn í skráningu húsanna. Þá getur þurft að gera nýjan aðaluppdrátt og fá hann samþykktan hjá byggingafulltrúa. Í slíkum tilfellum hef ég gert uppdrættina en verið í samstarfi við löggilta hönnuði varðandi yfirferð, ábyrgð, áritun og innsetningu.
Sendu mér línu ef þú þarft að láta útbúa eignaskiptayfirlýsingu.
Þorvaldur E Þorvaldsson
